Þórðarhöfði
Þórðarhöfði á Höfðaströnd er 202 m hár klettahöfði sem gengur út í austanverðan Skagafjörð, rétt norðan við Hofsós, og setur mikinn svip á umhverfi sitt. Til að sjá virðist höfðinn vera eyja en hann er landfastur, tvö lág eiði, Höfðamöl og Bæjarmöl, tengja hann við land og á milli þeirra er 10 ferkílómetra stórt sjávarlón, Höfðavatn. Í því er ágæt bleikjuveiði. Snemma á 20. öld lagði Jóhann Sigurjónsson skáld til að gerð yrði hafskipahöfn í vatninu en af því varð ekki.
Þórðarhöfði er gömul eldfjallarúst. Afar fallegar stuðlabergsmyndanir eru í berginu en þær sjást best af sjó.
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaKerfissíða:LeitCarles PuigdemontKerfissíða:Nýlegar breytingarErpur EyvindarsonBrúðkaupsafmæliÁgúst Bent SigbertssonFiann PaulListi yfir íslensk mannanöfnListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir íslensk póstnúmerGylfi Þór SigurðssonListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaÁsdís Rán GunnarsdóttirGeorgíaFramlenging (knattspyrna)Listi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999HljómsveitXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)MúsíktilraunirEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024SlóvakíaListi yfir morð á Íslandi frá 2000Seinni heimsstyrjöldinBjörn BorgHæsta hendinXXXTorfi H. TuliniusÍslandAndrés MagnússonMorð á ÍslandiListi yfir skammstafanir í íslenskuGelsenkirchenAkureyriWiki HowMynsturWikipedia:PotturinnHjálp:Efnisyfirlit