Burger King
Burger King er bandarísk skyndibitakeðja sem selur hamborgara. Fyrsti veitingastaðurinn var opnaður árið 1953. Árið 2024 rekur keðjan um 19,200 veitingastaði um allan heim. Burger King var starfandi á Íslandi frá 2004 til 2008.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c7/Burger_King_Martos.jpg/220px-Burger_King_Martos.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/cc/Burger_King_2020.svg/220px-Burger_King_2020.svg.png)
Ísland
breytaÍ ágúst 2003 var fyrst tilkynnt um komu Burger Kings til landsins.[1] Fyrsti veitingastaður Burger King hér á landi var opnaður þann 18. febrúar 2004 í Smáralind í Kópavogi.[2] Þann 16. desember 2004 opnaði annar Burger King staðurinn hér á landi í útibúi Essó í Ártúnsholti í Reykjavík, að Straumi 9 (þar sem að í dag er N1).[3] Báðir veitingastaðir Burger Kings á Íslandi lokuðu þann 30. desember 2008 vegna vandamála með innflutning á hráefnum.[4] Tankur ehf. rak Burger King á Íslandi.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Burger King í Smáralind síðar á árinu“. www.mbl.is. Sótt 29. júní 2024.
- ↑ „Burger King Smáralind - Myndasafn mbl.is“. www.mbl.is. Sótt 29. júní 2024.
- ↑ „Dagblaðið Vísir - DV - 273. tölublað (02.12.2004) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 29. júní 2024.
- ↑ „Síðasti sjéns til þess að fá sér Burger King á Íslandi - Vísir“. visir.is. 30. desember 2008. Sótt 29. júní 2024.
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaKerfissíða:LeitBrúðkaupsafmæliCarles PuigdemontKerfissíða:Nýlegar breytingarListi yfir íslensk póstnúmerFiann PaulErpur EyvindarsonÁgúst Bent SigbertssonListi yfir íslensk mannanöfnListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaListi yfir landsnúmerListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaGylfi Þór SigurðssonSeinni heimsstyrjöldinTyrklandEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024Listi yfir skammstafanir í íslenskuMúsíktilraunirÍslandAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Morð á ÍslandiXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)RúmeníaAusturríkiHermannaveikiHljómsveitListi yfir morð á Íslandi frá 2000Bikarkeppni karla í knattspyrnuMynsturHjálp:EfnisyfirlitWikipedia:Almennur fyrirvariHvalfjarðargöngListi yfir morð á Íslandi frá 1970–19992. júlíwjsfyReykholtsdalurWikipedia:Hlaða inn skrá