Nítróglusserín
Nítróglusserín eða nítróglyserín (efnaformúla: (C3H5(ONO2)3) er mjög sprengifimur vökvi, búinn til úr saltpéturssýru, brennisteinssýru og glusseríni. Nítróglusserín er geysiöflugt sprengiefni sem springur við minnsta högg og hefur stundum valdið miklum slysum. Nítróglusserín er notað í iðnaði, m.a. til að framleiða dínamít. Ef dínamít er geymt lengi lekur nítróglusserínið oft út úr sprengihólkunum og verður sérlega hættulegt. [1] Nítróglusserín er einnig notað í sprengitöflur sem sumir hjartasjúklingar taka. [2]
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a7/Nitroglycerin.svg/220px-Nitroglycerin.svg.png)
Það var ítalski efnafræðingurinn Ascanio Sobrero sem fann upp nítróglusserín árið 1847 þegar hann hellti hálfu máli af glusseríni í dropatali út í eitt mál af saltpéturssýru og tvö mál af brennisteinssýru.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Fundu 7 kg af dínamíti á gömlu skemmulofti“. bb.is. 3. júní 2005. Sótt 5. desember 2008.
- ↑ Morgunblaðið 1998
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaBjörn BorgKerfissíða:LeitCarles PuigdemontKerfissíða:Nýlegar breytingarErpur EyvindarsonBrúðkaupsafmæliFiann PaulListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999VenusvagnÓlafur Páll TorfasonListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaHljómsveitHæsta hendinListi yfir íslensk mannanöfnXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Morð á ÍslandiMúsíktilraunirGylfi Þór SigurðssonÁgúst Bent SigbertssonListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir íslensk póstnúmerSeinni heimsstyrjöldinBaskarÍslandWiki HowComité flamand de FranceBrúðubíllinnListi yfir morð á Íslandi frá 2000StuðlabandiðXXXSvissDýrafjörðurListi yfir skammstafanir í íslenskuWikipedia:Almennur fyrirvariReykjavíkFlokkur:Íslensk karlmannsnöfnHjálp:Efnisyfirlit