Spenna
Spenna er styrkur rafmagns. Í rafmagnsfræðum er oftast átt við mismun á styrk mættisins milli tveggja punkta í rafsviði, þar sem annar punkturinn er jörð, sem samkvæmt skilgreiningu hefur rafmætti núll. SI mælieining er volt, nefnd eftir ítalska eðlisfræðingnum Alessandro Volta.
Stærðfræðileg skilgreining rafspennu: Styrkur rafmættis, eða sú vinna, sem þarf til að hliðra einingarrafhleðslu í rafsviði, frá punkti b til punkts a, en það má setja fram með ferilheildinu
Jafnspenna er föst í tíma, en riðspenna sveiflast reglulega milli tveggja útgilda.
Jafnspennan V í rafrás er hlutfall afls W og rafstraums I:
Samband straums og spennu
breytaLögmál Ohms gefur samband rafspennu og -straums í rafrás með því að skilgreina rafviðnám.
Spennulögmál
breytaSpennulögmálið segir að summa allra spennugjafa rafrásar sé jöfn summu spennulfallanna.
Jöfnur Maxwells
breytaJöfnur Maxwells gefa samband rafsegulsviðs og rafspennu.
Háspenna
breyta![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a9/High_voltage_warning.svg/220px-High_voltage_warning.svg.png)
Háspenna kallast rafspenna sem er nægjanlega há til geta valdið skammhlaupi í lofti og er hættuleg mönnum og dýrum.
Rafspenna á heimilum
breytaÍslensk heimili nota 230 volta riðspennu, með sveiflutíðnina 50 rið, sem strangt tekið telst ekki háspenna, en getur samt verið banvæn. Um raflagnir á heimilum og í fyrirtækjum gilda lög, sem ætlað er að koma í veg fyrir slys af völdum rafmagns.