Skagafjörður

Skagafjörður er fjörður á Norðurlandi, milli Tröllaskaga til austurs og Skaga til vesturs. Nafnið er einnig haft um héraðið umhverfis fjörðinn og inn af honum. Þar er samnefnt sveitarfélagSkagafjörður. Mikill landbúnaður er stundaður í héraðinu og er umfangsmikil útgerð stunduð á Sauðárkróki og Hofsósi.

Á firðinum eru þrjár eyjar, MálmeyDrangey og Lundey. Auk þess er höfði við austurströnd fjarðarins sem heitir Þórðarhöfði. Fjörðurinn er um 40 km langur og 15 km breiður.

Héraðsvötn renna til sjávar í tveimur kvíslum sitt hvoru megin við Hegranesið en þau verða til þar sem Austari-Jökulsá og Vestari-Jökulsá, sem báðar eiga upptök sín í Hofsjökli, koma saman neðan við bæinn Tunguháls.

Kort sem sýnir Skagafjörðinn.
Skagafjörður

Sveitir og byggðir

breyta

Skagafjörður hefur frá fornu fari skipst í ýmis byggðalög og fóru mörk þeirra ekki alltaf alveg saman við hreppamörk. Langholt skiptist til dæmis milli Staðarhrepps og Seyluhrepps og jarðir sem töldust til Vallhólms voru í þremur hreppum. Sum nafnanna sem hér eru talin eru nú lítið notuð og einstakar sveitir hafa farið í eyði. Á hinn bóginn hafa bæst við þrír þéttbýlisstaðir, Sauðárkrókur, Varmahlíð og Hofsós.

Hreppir í Skagafirði

breyta

Árið 2022 sameinuðust Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður í nýtt sveitarfélag sem heitir einfaldlega Skagafjörður. Áður höfðu aðrir hreppir, utan Akrahrepps, sameinast árið 1998[1].

HreppurSameinastAthugasemd
Akrahreppur2022
Sauðárkrókskaupstaður1998Sauðárkrókshreppur fékk kaupstaðaréttindi 1948
Skefilsstaðahrepps1998
Skarðshreppur1998
Staðarhreppur1998
Seyluhreppur1998
Lýtingsstaðahreppur1998
Rípurhreppur1998
Viðvíkurhreppur1998
Hólahreppur1998
Hofshreppur1998
Fljótahreppur1998
Hofsóshreppur1990Hreppnum skipt úr Hofshrepp 1948. Sameinast í Hofshrepp
Fellshreppur1990Sameinast í Hofshrepp
Haganeshreppur1988Skipt úr Fljótahrepp 1897. Sameinast í Fljótahrepp
Holtshreppur1988Skipt úr Fljótahrepp 1897. Sameinast í Fljótahrepp
SauðárhreppurSkipt í Sauðárkrókshrepp og Skarðshrepp 1907

Tengt efni

breyta

Heimild

breyta
  • „Skagafjörður.is - Um Skagafjörð - Landfræðilegar upplýsingar“. Sótt 23. nóvember 2005.
  • Skagafjarðarútsýn; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1934
  1. „Skagafjörður“. kosningasaga. 20. febrúar 2022. Sótt 30. desember 2022.