Stórhertogi Lúxemborgar
Stórhertogi Lúxemborgar er þjóðhöfðingi Lúxemborgar. Hertogadæmið Lúxemborg var gert að stórhertogadæmi á Vínarþinginu árið 1815. Þá var það í sambandi við Sameinað konungdæmi Niðurlanda og Óraníuættina. Þegar Vilhjálmur 3. Hollandskonungur lést og Vilhelmína Hollandsdrottning tók við völdum í Hollandi 1890 gekk Lúxemborg til næsta karlkyns erfingja af Nassáættinni, Adolfs. Síðan þá hafa afkomendur hans ríkt sem stórhertogar, þar af tvær ríkjandi stórhertogaynjur, María Aðalheiður (1912-1919) og systir hennar, Karlotta (1919-1964). Núverandi stórhertogi er Hinrik af Lúxemborg.
Listi yfir stórhertoga
breytaÓraníu-Nassá-ætt
breytaMynd | Nafn | Fæðingardagur | Dánardagur | Embættisár | Tengsl við forvera |
---|---|---|---|---|---|
![]() | Vilhjálmur 1. Willem Frederik (Vilhjálmur 6. af Óraníu) | 24. ágúst 1772 | 12. desember 1843 | 15. mars 1815 – 7. október 1840 | þremenningur við Frans og beinn afkomandi hertogaynjunnar Önnu |
![]() | Vilhjálmur 2. Willem Frederik George Lodewijk | 6. desember 1792 | 17. mars 1849 | 7. október 1840 – 17. mars 1849 | sonur hans |
![]() | Vilhjálmur 3. Willem Alexander Paul Frederik Lodewijk | 17. febrúar 1817 | 23. nóvember 1890 | 17. mars 1849 – 23. nóvember 1890 | sonur hans |
Nassá-Weilburg-ætt
breytaName | Mynd | Fæðing | Hjónabönd | Andlát | Erfðaréttur |
---|---|---|---|---|---|
Adolf 23. nóvember 1890 – 17. nóvember 1905 | ![]() | 24.júlí 1817 Wiesbaden (Prússlandi) | (1) Elísabet stórhertogaynja 31. janúar 1844 [1 barn (andvana)] (2) Aðalheiður María af Anhalt-Dessá 23. apríl 1851 [5 börn] | 17. nóvember 1905 Colmar-Berg | Skyldur Vilhjálmi 3. í karllegg |
Vilhjálmur 4. 17. nóvember 1905 – 25. febrúar 1912 | ![]() | 22. apríl 1852 Wiesbaden (Prússlandi) | María Anna af Portúgal [6 börn] | 25. febrúar 1912 Colmar-Berg | Sonur Adolfs |
María Aðalheiður 25. febrúar 1912 – 14. janúar 1919 (afsögn) | ![]() | 14. júní 1894 Colmar-Berg | Ógift [barnlaus] | 24. janúar 1924 Lenggries (Þýskalandi) | Dóttir Vilhjálms 4. |
Karlotta 14. janúar 1919 – 12. nóvember 1964 (afsögn) | ![]() | 23. janúar 1896 Colmar-Berg | Felix af Búrbon-Parma 6. nóvember 1919 [6 börn] | 9. júlí 1985 Fischbach | Dóttir Vilhjálms 4. / Systir Maríu Aðalheiðar |
Jóhann af Lúxemborg 12. nóvember 1964 – 7. október 2000 (afsögn) | ![]() | 5. janúar 1921 Colmar-Berg | Jósefína Karlotta af Belgíu 9. apríl 1953 [5 börn] | 23. apríl 2019 Lúxemborg, Lúxemborg | Sonur Karlottu |
Hinrik 7. október 2000 – dagsins í dag | ![]() | 16. apríl 1955 Betzdorf | María Teresa af Lúxemborg 4. febrúar/14. febrúar 1981 [5 börn] | Á lífi | Sonur Jóhanns |
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/timeline/bjd4hnmmrp7cr3qjbpx1f23lpaivdk4.png)
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaBrúðkaupsafmæliKerfissíða:Nýlegar breytingarCarles PuigdemontKerfissíða:LeitListi yfir íslensk póstnúmerErpur EyvindarsonFiann PaulÁgúst Bent SigbertssonListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaÞjóðfylkingin (Frakkland)Gylfi Þór SigurðssonListi yfir íslensk mannanöfnSlóveníaHljómsveitListi yfir skammstafanir í íslenskuListi yfir landsnúmerGuðrún Karls HelgudóttirMúsíktilraunirSeinni heimsstyrjöldinÍslandCristiano RonaldoHæsta hendinXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Evrópukeppnin í knattspyrnu 2024HéraðsvötnListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999Íslenska stafrófiðXXXReykjavíkWikipedia:HeimildirHjálp:EfnisyfirlitListi yfir morð á Íslandi frá 2000Íslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaWikipedia:Um verkefniðAlþingiskosningarHeimir Hallgrímsson