Stuttermabolur
Stuttermabolur er tegund fatnaða, sem er dregin yfir höfuðið til að hylja búkinn. Bolur er yfirleitt án talna, flibba eða vasa og með kringlóttu hálsmáli og stuttum ermum. Ermarnar á stuttermabol hylja axlirnar en hylja ekki olnboga. Stuttermabolur sem er lengri eða styttri en þetta telst ekki stuttermabolur. Stuttermabolir eru yfirleitt gerðir úr bómulla- eða pólýesterþráðum (eða blöndu tveggja). Stuttermabolir eru prjónaðir saman með peysusaumi sem gefur þeim mjúka áferð. Stuttermabolir geta verið skreyttir með texta eða myndum og eru stundum notaðir til auglýsinga.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/58/Paper_clip_Tshirt.jpg/250px-Paper_clip_Tshirt.jpg)
Stuttermabolir eru fáanlegir handa körlum, konum og börnum og eru vinsælir hjá öllum aldurshópum. Upprunalega voru stuttermabbolir notaðir sem nærföt, en nú eru stuttermabolir stundum eina flíkin á búknum (fyrir utan brjóstahaldara eða nærskyrtu). Nú á dögum eru stuttermabolir stundum notaðir til sjálfstjáningar og auglýsinga.