Vigurmynd
Vigurmynd eða línuteikning er tölvuskrá sem inniheldur upplýsingar um þau grunnform (punkta, línur, boglínur og marghyrninga) sem mynda eina tvívíða mynd. Vigurmyndir eru þannig ólíkar rastamyndum þar sem hver punktur myndarinnar er geymdur í fylki. Með talsverðri einföldun má segja að í myndvinnslu með tölvu séu vigurmyndir oftast notaðar fyrir teikningar en rastamyndir fyrir ljósmyndir.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/aa/VectorBitmapExample.svg/220px-VectorBitmapExample.svg.png)
Andstætt rastamynd sem tapar gæðum (verður pixluð) við stækkun, er hægt að stækka og teygja vigurmynd að vild án þess að gæðin minnki.
Dæmi um algeng teikniforrit til að vinna með vigumyndir eru Adobe Illustrator, Adobe Flash, Inkscape og CorelDRAW. Algeng myndasnið fyrir vigurmyndir eru CGM, EPS, SVG, PDF og SWF.
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaKerfissíða:LeitCarles PuigdemontKerfissíða:Nýlegar breytingarErpur EyvindarsonWikipedia:StubburListi yfir íslensk póstnúmerÓlafur Páll TorfasonBrúðkaupsafmæliFiann PaulHljómsveitMúsíktilraunirGunnar ÞorsteinssonXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Hæsta hendinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaÍslendingasögurListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir morð á Íslandi frá 2000Wikipedia:HeimildirListi yfir skammstafanir í íslenskuSeinni heimsstyrjöldinRagnar StefánssonListi yfir íslensk mannanöfnEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024Gylfi Þór SigurðssonÁgúst Bent SigbertssonXXXVestmannaeyjarÍslandAlþingiskosningar 1987Wiki HowEldgosaannáll ÍslandsFlámæli27. júníSigurskúfurMorð á ÍslandiAlþingiskosningar